Ljónin misstigu sig í toppbaráttunni og Kiel fékk enn einn skellinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. nóvember 2017 19:39 Alfreð Gíslason hefur þjálfað Kiel í nærri áratug Vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen missteig sig í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar í handbolta í kvöld þegar að liðið tapaði, 28-26, á útivelli gegn Frisch AUF! Göppingen. Leikjaálagið á Ljónunum hefur verið yfirgengilegt í nóvember og virðist það hafa náð til manna í kvöld en Göppingen er í tólfta sæti og ætti að vera auðveld bráð fyrir Þýskalandsmeistarana. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk úr sjö skotum, þar af tvö mörk úr vítaköstum, fyrir Löwen í kvöld og Alexander Petersson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir utan. Löwen missti Rúnar Kárason og félaga í Hannover-Burgdorf upp fyrir sig í þriðja sætið með tapinu en Hannover vann tveggja marka útisigur á móti Lemgo í kvöld, 29-27. Rúnar skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir utan en Hannover er að lauma sér í baráttu um Þýskalandsmeistaratitilinn. Alfreð Gíslason er enn þá í stórkostlegum vandræðum með Kiel en liðið fékk enn einn skellinn í kvöld þegar að liðið tapaði fyrir Gummersbach með fjórum mörkum, 31-27. Kiel er aðeins með 17 stig eftir fjórtán umferðir, sex stigum frá toppnum og ekki í Evrópusæti. Gummersbach er í 14. sæti deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira