Spóluhnýðissýking herjar á íslenska tómata Jakob Bjarnar skrifar 3. nóvember 2017 15:18 Veirungurinn er hvorki skaðlegur mönnum né dýrum en leggst á kartöflur og tómata og getur valdið afföllum í ræktun.
Matvælastofnun hefur gefið út viðvörun um plöntusjúkdóm sem greinst hefur í tómatarækt á Íslandi. Frá þessu greinir á stjórnarráðsvefnum. Um er að ræða sjúkdóm sem nefnis Potato spindle tuber viroid eða spóluhnýðissýkingu. Þetta er veirungur sem er hvorki skaðlegur mönnum né dýrum en leggst á kartöflur og tómata og getur valdið afföllum í ræktun. „Þetta er önnur veiran sem greinist í tómatarækt á innan við mánuði en í upphafi mánaðarins greindist Pepino mósaík vírus,“ segir í tilkynningunni. Einkennin geta verið mismunandi og fer alvarleikinn eftir sýkingarafbrigði. Stundum eru engin einkenni en þeirra verður yfirleitt fyrst vart í efri hluta plöntu „þar sem lauf verða gulleit með brúnleitum flekkjum á meðan stærri æðar plöntunnar haldast skærgrænar. Vöxtur laufblaða getur einnig verið takmarkaður. Einkenni geta líka birst á ávöxtum en sýktir ávextir geta verið litlir, dökkgrænir, harðir og vöxtur afbrigðilegur.“ Matvælastofnun beinir því til kartöfluræktenda að gæta að mögulegu krosssmiti frá einstaklingum og aðföngum sem borið gætu smit úr tómatrækt. Og eru þeir sem verða varir við sýkingu að tilkynna stofnunni strax um slík tilvik.
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira