Fiat og Alfa Romeo bílasýning Finnur Thorlacius skrifar 13. október 2017 09:27 Krúttbomban Fiat 500.
Íslensk-Bandaríska heldur Fiat og Alfa Romeo bílasýningu laugardaginn 14. október í sýningarsal fyrirtækisins að Þverholti 6, Mosfellsbæ. Á sýningunni verða sýndir verða nýjustu Fiat Tipo bílarnir í hatchback og station útgáfu. Fjórhjóladrifnir Fiat Panda Cross og Fiat 500X og síðast en ekki síst hinn goðsagnakenndi Fiat 500. Fiat Professional atvinnubílarnir Fiat Fiorino, Fiat Doblo og Fiat Ducato verða líka sýndir. Allir þeir sem kaupa eða panta nýjan Fiat í október mánuði fá vetrarpakka í kaupauka sem innifelur, vetrardekk, gúmmímottur og þjónustuskoðun í 2 ár. Fiat fólks- og atvinnubílar eru allir með 5 ára ábyrgð. Samhliða Fiat sýningunni mun Íslensk-Bandaríska sýna sport- og lúxusjeppann Stelvio frá Alfa Romeo. Stórglæsilegur og mjög vel útbúinn bíll, með einstaka og sportlega aksturseginleika, sem ávallt hefur verið einkenni Alfa Romeo bíla. Á dögunum setti Stelvio hraðamet á þýsku Nürburgring kappakstursbrautinni og er hann þar með orðinn hraðskreiðasti fjöldaframleiddi jeppinn. Stelvio er boðinn með 5 ára ábyrgð. Sýning er opin frá kl. 12-16 og verður boðið upp á ítalskt Lavazza eðalkaffi, Egils Appelsín og kúluís frá ísbúðinni Valdísi. Á meðan sýningunni stendur verður skallatenniskeppni Fiat og Áttunar FM á útisvæði. Í stað hefðbundins nets sem notað er í skallatennis, munu keppendur skalla yfir Fiat 500 bíl. Veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara og er öllum heimil þátttaka í keppninni.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent