Allt í lagi að koma á Hyundai i30 á fyrsta deit Benedikt Bóas skrifar 20. september 2017 20:00 Hyundai i30 er hannaður í Evrópu og er með fimm ára ábyrgð. Vélin lumar á heilum 140 hrossum undir húddinu sem ætti að skila deitinu heim á skikkanlegum tíma. Ódýrasti bíllinn fannst á 450 þúsund. NordicPhotos/Getty
Síðustu 10 daga hefur hver Hyundai i30 bíllinn rúllað út úr umboðinu í Garðabæ í hendur nýrra eigenda. Hyundai i30 kemur fyrir í laginu B.O.B.A., með þeim Jóa Pé og Króla, sem er eitt vinsælasta lag landsins þessa stundina. „Síðustu tíu daga hefur verið að seljast meira af þessum bíl. Hvort það er laginu að þakka eða ekki veit ég ekki. Hann er reyndar mjög góður,“ segir Kristinn Páll Teitsson, sölumaður hjá Hyundai umboðinu.Jasmín Dúfa Pitt á stjörnuleik í myndbandinu. Myndir/SkjáskotÓdýrasti bíllinn kostar rúmar 450 þúsund krónur á bílasölur.is en ódýrasta útgáfan af nýjum bíl kostar um þrjár milljónir. Dýrasta útgáfan er á um 4,2 milljónir. Lagið hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og þeir Jóhannes Damian Patreksson og Kristinn Óli Haraldsson hafa skotist upp á stjörnuhimininn á miklum hraða. Horft hefur verið á lagið um 350 þúsund sinnum á YouTube og spilað oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á tónlistarveitunni Spotify. Króli er ánægður með sinn i30 Hyundai í myndbandinu B.O.B.A.Nýlega kom út átta laga plata með þeim félögum sem heitir Gerviglingur og hefur verið að fá góðar viðtökur þó vinsældir B.O.B.A. lagsins slái öll met. „Þetta eru búnir að vera mjög góðir dagar varðandi i30 bílinn en hvort það er laginu að þakka er stór spurning. Þetta er bíll með góða aksturseiginleika, góða vél og er vel útbúinn með góðar græjur. Það er allt í lagi að koma á i30 á fyrsta deit,“ segir Kristinn. B.O.B.A./ViðlagB.O.B.A. það er bombaFýla ekki góða píu, fýla bara vondaFyrsta deiti, púlla upp í i30 HyundaiSlæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Fleiri fréttir Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Sjá meira