Erill vegna ofbeldis og ölvunar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. júlí 2017 09:01 Þrjú ofbeldismál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. vísir/eyþór
Lögreglan handtók í miðborginni í nótt karlmann sem hafði sparkað í höfuð annars manns. Lögreglumenn á vakt urðu vitni að árásinni og gripu inn í. Hinn slasaði var færður á slysadeild til skoðunar á meðan hinn fékk að gista fangageymslur. Þrjú ofbeldismál komu til kasta lögreglunnar í nótt en laust fyrir klukkan þrjú í nótt var tilkynnt um mann með höfuðáverka í miðbæ Reykjavíkur. Sá hafði fengið glas í andlitið svo úr blæddi. Hann var fluttur á slysadeild en ekki er vitað hver kastaði glasinu í manninn. Þá segir í skeyti frá lögreglu að á fimmta tímanum í nótt hafi verið tilkynnt um ósátt par í austurbænum. Þegar lögreglu bar að garði hafði karlmaður veist að konu og var maðurinn handtekinn á staðnum. Konan var flutt á slysadeild. Laust fyrir klukkan hálf þrjú óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð þar sem farþegi neitaði að borga fargjaldið. Þegar farþeginn vissi að lögregla væri á leiðinni snaraði hann fram peningum og greiddi fargjaldið. Með því lauk málinu. Sjö ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Allir voru látnir lausir að lokinni sýna- og skýrslutöku.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira