Festi bílinn á Esjunni og skildi hann eftir Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. júlí 2017 12:35 Líkt og sjá má hér er bíllinn í talsverðri hæð. vísir/stefán karlsson
Uppfært 21:18 Enn hefur ekki tekist að ná í eiganda bílsins. Það verður væntanlega hans að koma bílnum af svæðinu. Bíl var ekið upp Esjuna síðdegis í gær með þeim afleiðingum að hann festist. Ökumaðurinn skildi bílinn eftir á fjallinu en búist er við að ráðast þurfi í talsverðar aðgerðir til þess að koma bílnum niður. Ekki hefur tekist að hafa uppi á eiganda bílsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Bíllinn virðist hafa fests eftir að honum var ekið út af vegaslóða sem liggur upp fjallið, en líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum er bíllinn í töluverðri hæð. Björgunarsveitir munu líklega fá verkefnið á sitt borð því gert er ráð fyrir að stærri tæki þurfi til þess að losa bílinn og koma honum niður fjallið. Lögreglan segist í samtali við fréttastofu aldrei hafa fengið slíkt verkefni á sitt borð, enda aki fólk almennt ekki upp Esjuna. Vonir séu bundnar við að ekkert tjón hafi hlotist af akstrinum. Ekki fengust upplýsingar um hvort um væri að ræða erlenda ferðamenn eða Íslendinga. Reynt verður að koma bílnum niður eftir að lögreglu tekst að hafa uppi á ökumanninum.Lögregla hefur ekki náð tali af ökumanninum.vísir/stefán karlssonvísir/stefán karlsson
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira