Upprisa holdsins Frosti Logason skrifar 13. júlí 2017 07:00 Vatíkanið eða Páfagarður er stórmerkilegur staður og í raun hálfgert fyrirbæri í margs konar skilningi þess orðs. Það er sjálfstætt ríki, landlukt land, sem einungis á landamæri að Ítalíu enda í rauninni staðsett inni í miðri Rómaborg. Þarna hefur sjálfur páfinn aðsetur sitt. Situr þar á Hinum helga stól og drottnar yfir kaþólikkum um allan heim. Þarna eru líka margar glæsilegustu kirkjur og kapellur veraldar, þeirra á meðal hin fræga Sixtínska kapella. Landið er sveipað dulúð, virðingu og glæsileika. Það kom þess vegna mörgum á óvart þegar lögreglan þar ruddist inn á heimili háttsetts preláta nú á dögunum og leysti upp mikla kynsvallsveislu nokkurra presta sem allir voru meira og minna undir áhrifum ólöglegra vímuefna. Svallið átti sér stað í íbúð í eigu kardínálans Francesco Coccopalmerio, en hann er sérstakur aðstoðarmaður og ráðgjafi Frans páfa. Francesco var þó fjarri góðu gamni, en ritari hans var færður á sjúkrastofnun til þess að láta dæla úr sér vímuefnum og svara spurningum lögreglu. Einhverjir fréttamiðlar hafa greint frá því að Frans páfi sé alveg foxillur yfir þessu. Hann upplifi þetta sem skömm og vandræðalegt fyrir embætti sitt. Ég tel þetta þó jákvætt fyrir kirkjuna. Þetta eru nefnilega fyrstu fréttir sem ég heyri af kaþólskum prestum stunda kynlíf með einhverjum sem ekki er undir aldri. Það gæti verið gott fyrir almannatengla Vatíkansins að benda á sem ákveðið heilbrigðismerki. Þá er þarna einnig kjörið tækifæri til þess að bakka með fyrri yfirlýsingar um ástir fullveðja karlmanna sem viðurstyggð. Margt jákvætt í þessu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Frosti Logason Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun