Austurríska lögreglan á Porsche 911 Finnur Thorlacius skrifar 30. júní 2017 10:23 Laglegur Porsche 911 bíll austurrísku lögreglunnar.
Austurrískir lögreglumenn verða á Porsche 911 bíl við aðgæslu á hraðbrautum landsins á næstunni en austurríska lögreglan á reyndar langa sögu með notkun Porsche bíla í sinni þjónustu. Notkun hennar á Porsche bílum rekur sig til sjöunda áratugar síðustu aldar, en þá voru í notkun þó nokkuð margir Porsche bílar hjá austurrísku lögreglunni. Lögreglan í Hollandi er einnig þekkt fyrir notkun Porsche bíla og hófst sú saga árið 1960 og fljótlega eftir það hafði hún yfir að ráða einum 40 Porsche 356 Cabriolet bílum. Seinna meir tók hollenska lögreglan í notkun Porsche 911 bíla og voru þeir flestir af Targa gerð. Lögreglan í Dubai er þekkt fyrir glæstan bílaflota sinn og þar á meðal eru Porsche bílar og er ofurbíllinn Porsche 918 einn þeirra. Ekki er verri floti hjá Ítölsku lögregunni en hún hefur í sínu vopnabúri bíla eins og Ferrari 458 Spider í Mílanó og lögreglan í Bologna er með Lamborghini Huracán í sinni þjónustu, sem og Alfa Romeo Giulia Veloces bíla. Það getur því verið erfitt að stinga af lögregluna víða á meginlandi Evrópu.Lögreglubíll af gerðinni Porsche 356 fyrir margt löngu.Porsche 911 Targa lögreglubíll var líklega hentugur við löggæslustörf á árum áður.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent