Þýskaland vann England eftir vítaspyrnukeppni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 27. júní 2017 18:47 Tammy Abraham skoraði í leiknum en klúðraði í vítaspyrnukeppninni. vísir/getty
Þetta hefur gerst áður. Já, Þýskaland lagði England í vítakeppni til þess að komast í úrslitaleik EM-liða 21 árs og yngri. Englendingar gráta enn eina ferðina eftir rimmu gegn þeim þýsku. Þjóðverjar byrjuðu leikinn betur því Davie Selke kom þeim yfir á 35. mínútu leiksins. Demarai Gray jafnaði fyrir England sex mínútum síðar og 1-1 í leikhléi. Það voru aðeins liðnar fimm mínútur af síðari hálfleik er Tammy Abraham kom Englendingum yfir í leiknum. Það dugði þó ekki til því Felix Platte jafnaði 20 mínútum fyrir leikslok og þar við sat. Staðan 2-2 eftir venjulegan leiktíma og því varð að framlengja. Ekki var skorað þar þrátt fyrir sérstaklega mikla pressu frá Þjóðverjum sem skutu 38 sinnum, já 38 sinnum, að marki í leiknum en Englendingar 17 sinnum. Þjóðverjar voru með boltann um 70 prósent leiktímans. Vítaspyrnukeppni var því niðurstaðan sem er fyrirfram martraðarstaða fyrir England. Eitthvað sem enginn vildi sjá þar í landi. Englendingar æfðu vítaspyrnur fyrir leikinn en Þjóðverjar slepptu því. Staðan í vítakeppninni var 3-3 fyrir lokaumferðina. Þjóðverjar skoruðu úr sinni spyrnu en Nathan Redmond lét verja frá sér og Þjóðverjar fögnuðu. Þeir spila við Spán eða Ítalíu í úrslitaleiknum.
Fótbolti Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Körfubolti Fleiri fréttir Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn „Hann er sonur minn“ Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Hákon og félagar léku manni fleiri í klukkutíma en töpuðu samt Sancho tryggði Aston Villa áfram í Evrópudeildinni Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Sigurður Bjartur á leið til Spánar? „Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu