Forstjóri Ford rekinn Finnur Thorlacius skrifar 22. maí 2017 10:32 Mark Fields og Bill Ford á meðan allt lék í lyndi.
Ford á samkvæmt fréttum frá mörgum bandarískum netmiðlum að hafa rekið forstjóra fyrirtækisins, Mark Fields, nú um helgina. Búist er við því að tilkynning berist frá Ford um brottreksturinn þegar vinnudagurinn hefst verstanhafs í dag. Líkt og hjá General Motors og Fiat Chrysler hefur Ford ekki tekist að sannfæra kaupahéðna á Wall Street um hversu mikils virði bílaframleiðandinn er og hafa hlutabréf í öll þessum fyrirtækjum verið með lægsta móti á undanförnum árum. Það hefur fallið í afar grýttan jarðveg hjá hluthöfum og er brottrekstur forstjóra Ford ef til vill ein birtingarmynd þess. Mark Fields hefur verið forstjóri Ford frá árinu 2014. Stjórn Ford ætlar að hrista hressilega uppí yfirstjórn Ford og stólaskiptin mun alls ekki einskorðast við forstjórann. Stjórn Ford, sem leidd er af stjórnarformanninum og Ford erfingjanum Bill Ford, á að hafa misst trúna á því að Mark Fields sé rétti maðurinn til að leiða Ford og ætlar að skipa James P. Hackett í stað hans í stól forstjóra, en hann hefur leitt Smart Mobility-deild Ford. Síðan Mark Fields settist í stól forstjóra Ford árið 2014 hefur hlutabréfaverð í Ford fallið um 40% og er sú staðreynda vafalaust sú sem ræður mestu um forstjóraskiptin nú.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent