Frábært mark Guðmundar nokkrum sekúndum frá því að vera sigurmark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. maí 2017 17:30 Guðmundur Þórarinsson. Vísir/Getty
Guðmundur Þórarinsson var næstum því hetja sinna manna í Norrköping í kvöld þegar liðið sótti stig til Stokkhólms í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Norrköping komst þrisvar yfir í leiknum á móti Djurgården en varð að sætta sig við 3-3 jafntefli. Guðmundur Þórarinsson kom inná sem varamaður á 69. mínútu leiksins og frábært mark hans kom Norrköping í 3-2 á 89. mínútu. Það leit allt út fyrir að það yrði sigurmarkið í leiknum en Djurgården jafnaði á þriðju mínútu í uppbótartíma. Það má sjá markið hans Guðmundar með því að smella hér. Hann tók við boltanum, lagði hann fyrir sig og lét vaða á markið. Djurgården hafði áður jafnað á 23. og 65. mínútu eftir að Norrköping komst í 1-0 á 5. mínútu og í 2-1 á 28. mínútu. Jón Guðni Fjóluson spilaði allan leikinn í miðri vörn Norrköping og Guðmnundur kom inná sem varamaður rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok en Alfons Sampsted sat allan tímann á varamannabekknum. Norrköping átti þarna möguleika á því að vinna sinn þriðja leik í röð en liðið er fimm sætum ofar en í Djurgården í töflunni. Guðmundur Þórarinsson var þarna að skora sitt fyrsta deildarmark fyrir Norrköping en félagið keypti hann frá Noregsmeisturum Rosenborg fyrir tímabilinu.MÅL! VILKET MÅL! DIF 2– 3 IFK Norrköping. Gudmundur "Gudi" Thórarinsson (90) #ifknkpg— IFK Norrköping (@ifknorrkoping) May 1, 2017
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City - Brighton | Stórleikur í Manchester-borg Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Sjá meira