Fótbolti

Sjáðu mörkin hjá Higuaín | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Argentínumaðurinn Gonzalo Higuaín skoraði bæði mörk Juventus þegar liðið vann 0-2 sigur á Monaco í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Juventus stendur því afar vel að vígi fyrir seinni leikinn á þriðjudaginn.

Bæði mörk Higuaíns komu eftir sendingar frá Dani Alves sem átti frábæran leik á hægri kantinum.

Higuaín kom Juventus yfir á 29. mínútu þegar hann batt endahnútinn á magnaða sókn ítalska liðsins. Alves átti þá hælsendingu á Higuaín sem skoraði með góðu skoti.

Á 59. mínútu skoraði Higuaín svo sitt annað mark með skoti af stuttu færi eftir frábæra sendingu Alves.

Þetta voru kærkomin mörk fyrir Higuaín sem hefur gengið erfiðlega að skora í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir leikinn í gær hafði hann aðeins skorað tvö mörk í 24 leikjum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

Higuaín er núna kominn með 31 mark á tímabilinu, sínu fyrsta í búningi Juventus.


Tengdar fréttir

Higuain sýndi að hann getur verið maður stóru leikjanna

Argentínski framherjinn Gonzalo Higuain sýndi og sannaði í kvöld að hann getur vel blómstrað í stóru leikjunum. Hann skoraði þá í tvígang fyrir Juventus í fyrri leik liðsins gegn Monaco í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×