Guðni Bergsson með tæpar 1,3 milljónir króna í laun hjá KSÍ Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. apríl 2017 11:33 Guðni Bergsson var kjörinn formaður í Vestmannaeyjum fyrr á árinu. mynd/ksí
Guðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í fótbolta, er með tæpar 1,3 milljónir króna í mánaðarlaun í starfi sínu sem formaður KSÍ en hann tók við starfinu af Geir Þorsteinssyni í febrúar á þessu ári.Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar KSÍ. Laun Guðna eru 1.283.000 krónur á mánuði og auk þess nýtur hann bifreiðahlunninda að hámarki 150.000 krónur. Samkvæmt þessu er Guðni með hærri grunnlaun en forveri hans, Geir Þorsteinsson, sem sagðist vera með 1.140.000 krónur í mánaðarlaun þegar hann svaraði fyrirspurn formanns knattspyrnudeildar FH á ársþinginu í fyrra. Geir var einnig útvegaður bíll og aksturskostnaður hans var greiddur af sambandinu. Hann var búinn að vera formaður í tíu ár þegar hann lét af störfum og hafði starfað hjá sambandinu í rúma tvo áratugi. Laun Guðna voru ákvörðuð í samræmi við viðmiðunarflokka ríkisskattstjóra fyrir reiknað endurgjald sérfræðing, að því fram kemur í fundargerð stjórnar KSÍ. „Stjórn sambandsins ræddi hvaða viðmiðun RSK kæmi til greina og kom sér saman um að laun formanns væru ákvörðun í samræmi við flokk A1," segir í fundargerðinni. Laun formanns og framkvæmdastjóra hafa vanalega verið sett saman í ársreikning KSÍ sem hefur aldrei verið vinsælt en nú er strax upp á borðinu hvað formaðurinn hefur í laun sem er í samræmi við aukið gagnsæi sem Guðni lofaði í framboði sínu.
Íslenski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira