Varað við algengri hóstamixtúru Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. apríl 2017 08:31 Vísir/Pjetur
Landlæknir varar við því að börnum séu gefin SEM-mixtúra sem mikið er notuð við hósta. Ástæðan er sú að mixtúran inniheldur umtalsvert magn af kódeini, sem getur haft margar aukaverkanir. Mikil aukning hefur orðið á notkun mixtúrunnar.Á vef Landlæknis kemur fram að á undanförnum árum hafi átt sér stað nokkur aukning í ávísun lyfja sem innihalda kódein, þar sé eitt lyf sem skeri sig úr og það sé SEM mixtúra. Þar segir jafnframt að hver barnaskeið (10 ml) af mixtúrunni inniheldur um 25 mg af kódeini, en til samanburðar inniheldur ein tafla af Parkodin forte 30 mg af kódeini. Samhliða mikilli aukningu í í notkun mixtúrunnar handa börnum hefur þeim börnum fækkað sem fengu Parkodin eða Parkodin forte en nærri fjórfalt fleiri börn fengu ávísað SEM-mixtúru árið 2016 en 2012. Á vef Landlæknis segir að SEM-mixtúra sé forskriftarlyf læknis, engar upplýsingar eða fylgiseðill fylgir lyfinu og eru þar af leiðandi engar leiðbeiningar eða aðvaranir. Ópíóíðar eins og morfín og kódín hafi almennt margar aukaverkanir. Meiri líkur séu á að aukaverkanir komi fram séu þeir teknir í óhóflegu magni eða af þeim sem þeir eru ekki ætlaðir. Þar segir einnig að alvarlegasta aukaverkun ópíóíða sé öndunarbæling og séu vissir hópar, meðal annars börn og aldraðir, viðkvæmari en aðrir. Þeir sem umbrjóta kódein hratt eru í verulegri hættu að fá alvarlegar aukaverkanir. Varar embætti Landlæknis við ávísunum kódeins á börn og einnig þeirri misnotkunarhættu sem af kódeini getur stafað en það umbreytist í morfín í líkamanum sem er mjög ávanabindandi verkjalyf. Bendir landlæknir á að Kódein eigi ekki að gefa börnum yngri en 12 ára og aðeins eigi að gefa lyf sem innihaldi efni í stuttan tíma og í eins litlum skömmtum og hægt er.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Sjá meira