Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri haldin um helgina Karl Lúðvíksson skrifar 23. mars 2017 11:32
Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri sem í ár verður í samvinnu við verslunina Hlað verður haldin helgina 25-26.mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut49 Stokkseyri. Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Fjölbreytt úrval skotvopnaverður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum. Thomas Danielsen frá Blaser í Þýskalandi verður á staðnum ásamt Arnfinni Jónssyni byssusmið sem kynnir sýna vinnu. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur frá Marocchi og Blaser, einnig sjónaukar frá Zeiss og Meopta ásamt hljóðdeyfum frá Hausken, Devik og Freyr,endurhleðsluvörum frá Hornady, Redding, Lyman, Berger Bulletsog fl. Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík svo eitthvað sé nefnt. Skotvís verður einnig með kynningu á sinni starfsemi. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr.1500.- fl. og 750 kr. börn 6-12 ára.
Mest lesið Gæti stefnt í mjög gott sumar í Eystri Rangá Veiði Lifnar aðeins yfir Blöndu Veiði Góðu tímibili lokið í Steinsmýrarvötnum Veiði Stefnir í gott veður síðustu helgina í rjúpu Veiði Eins og í lygasögu Veiði Veiðikortið 2017 komið út Veiði Meðalþyngdin 12 pund úr Fnjóská Veiði Farið að sjást í fyrstu laxagöngurnar Veiði Nýr Veiðimaður kominn út Veiði Góður lokasprettur í Jöklu Veiði