Bílabúð Benna lækkar verð Finnur Thorlacius skrifar 3. mars 2017 15:23 Verðlaunagripurinn Opel Astra er einn þeirra bíla sem hafa lækkað í verði hjá Bílabúð Benna.
Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð á öllum nýjum bílum, dekkjum og varahlutum, vegna styrkingar krónunnar. Verðlækkunin er mismunandi eftir tegundum og vöruflokkum, en getur numið umtalsverðum upphæðum. Í tilkynningu kemur fram að það sé kappsmál hjá Bílabúð Benna að koma hagstæðri gengisþróun, til viðskiptavina sinna. Fyrirtækið hafi gripið tækifærið fyrir nokkrum mánuðum og lækkað verð umtalsvert og nú hafi myndast svigrúm til að lækka það enn og aftur. Verðbreytingarnar eiga m.a. við um dekk sem lækka verulega í verði, óháð því hvort um vetrardekk, sumardekk eða heilsársdekk er að ræða. Þær bílgerðir sem lækka í verði eru Opel, SsangYong og Porsche. Þar er tekið dæmi verðið á Opel Corsa Essentia sem lækkað hefur um 10% og kostar nú aðeins 1.990 þús. kr. Þá er tilgreindur Rexton, fullvaxinn jeppi frá SsangYong, sem lækkar í 4.790 þús. kr. Áhugafólk um Porsche fær líka góðar fréttir, því nú er hægt að fá sportjeppann margverðlaunaða, Porsche Macan, á 8.950 þús. kr. Verðlækkunin gildir frá og með laugardeginum 4. mars. Bílabúð Benna slær upp stórsýningu í Tangarhöfðanum og frumsýnir þar lækkuð verð á Opel og SsangYong, laugardaginn 4. mars. Allir eru velkomnir milli kl. 12:00 og 16:00
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent