Fótbolti

Ramos breytti gangi mála á Stadio San Paolo | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-3 sigur á Napoli á útivelli í kvöld.

Real Madrid vann fyrri leikinn einnig 3-1 og einvígið því samanlagt 6-2.

Napoli var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náði forystunni á 24. mínútu. Hinn sjóðheiti Dries Mertens skoraði þá eftir sendingu Mareks Hamsik.

Fimm mínútum síðar skaut Cristiano Ronaldo í stöngina á marki Napoli. Á 37. mínútu var Mertens svo nálægt því að skora sitt annað mark en skaut í stöngina.

Staðan var 1-0 í hálfleik en strax eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik skallaði Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, hornspyrnu Tonis Kroos í markið.

Á 57. mínútu átti Ramos svo annan skalla eftir hornspyrnu Kroos sem fór af Mertens og í markið.

Álvaro Morata rak svo síðasta naglann í kistu Napoli þegar hann skoraði þriðja mark Real Madrid í uppbótartíma. Lokatölur 1-3, Real Madrid í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×