Shadow of War bætir hið frábæra Nemesis-kerfi Samúel Karl Ólason skrifar 8. mars 2017 15:45 Í Shadow of War vinna þeir Talion og Celebrimbor að því að mynda annan her til þess að sigra Sauron, áður en hann getur herjað á allan Miðgarð. Monolith Productions
Monolith Productions birtu í dag 16 mínútna myndband úr leiknum Shadow of War, framhaldi Shadow of Mordor, sem kemur út í ágúst. Þar má sjá hvernig Nemesis-kerfi leiksins hefur verið betrumbætt til muna en leikurinn virkar við fyrstu sín vera alveg einstaklega gagnvirkur. Það er líka dreki í myndbandinu, sem hægt er að hoppa á bakið á og nota til að brenna orka í tugatali. Það sem Nemesis-kerfið gerir er að skapa einstaka sögu í hverri spilun með því að spila með metorðastiga orka og skapa nýja svokallaða kafteina að handahófi. Kerfið bíður upp á hinar skemmtilegustu uppákomur og samræður við orka. Það gefur spilurum virkilega þá tilfinningu að þeir séu virkir þátttakendur í söguheiminum. Myndbandið er þó uppstillt að einhverju leyti og er því ætlað að sýna fram á hvað Nemesis-kerfið býður upp á. Í Shadow of War vinna þeir Talion og Celebrimbor að því að mynda annan her til þess að sigra Sauron, áður en hann getur herjað á allan Miðgarð. Shadow of Mordor gekk einmitt út á það sama, en hér virðist sem að eitthvað sé hægt að gera við herinn. Sem var ekki hægt í Shadow of Mordor.
Leikjavísir Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fleiri fréttir Laufey lifnar við í Fortnite Festival Sjá meira