Góðar horfur fram undan í greininni 31. janúar 2017 15:30 Verktakafyrirtækið Árni Helgason ehf. fékk nýlega afhentan nýjan Metso LT220D brjót sem fór beint í vinnu á Bakka við Húsavík.
KYNNING: Vélafl ehf. í Hafnarfirði hefur starfað á íslenskum vinnuvélamarkaði síðan árið 1998. Fyrirtækið er innflutnings- og umboðsaðili fyrir fjölmörg þekkt og traust vörumerki sem reynst hafa vel við fjölbreytt verkefni hér á landi, sem unnin eru við ólík vinnuskilyrði. Meðal þeirra vinnuvéla sem Vélafl flytur inn og selur eru beltagröfur, hjólagröfur og minigröfur, FRD borvagnar og vökvafleygar, Metso brjótar og mölunarsamstæður og Bell liðstýrðir trukkar (búkollur). „Einnig bjóðum við upp á gott úrval af völturum og þjöppum frá Bomag, vökvarippera frá Xcentric og Dieci skotbómulyftara,“ segir Sigurður E. Þorsteinsson, sölumaður hjá Vélafli. Viðskiptavinahópur Vélafls er fjölbreyttur að sögn Sigurðar, sem kemur að ólíkum verkefnum víða um land. „Við erum t.d. að selja til verktaka sem eru í ýmsum jarðvegsframkvæmdum og í húsbyggingum auk þess sem mörg sveitarfélög landsins nýta sér þjónustu okkar.“ Síðasta ár var mjög gott að sögn Sigurðar og horfur eru góðar á næstunni enda byrjar árið vel. „Meðal stórra viðskipta undanfarið má nefna að verktakinn Árni Helgason ehf. fékk afhentan nýjan Metso LT220D brjót sem fór beint í vinnu á Bakka við Húsavík. Brjóturinn er sambyggður kónbrjótur og harpa með byltingarkenndri hönn-un frá Metso sem mun án efa koma að mjög góðum notum við þetta verkefni.“Vélafl er til húsa í nýlegu og rúmgóðu húsnæði að Rauðhellu 11 í Hafnafirði sem inniheldur m.a. 1.380 m2 verkstæði og lager.Bjartsýni ríkir Einnig er búið að ganga frá sölu til ÍAV um kaup á brjótasamstæðu frá Metso. „Við erum einnig að taka inn á lager nýjan forbrjót sem er af gerðinni LT106. Það gerum við því horfur eru góðar í greininni á næstunni og kominn tími á endurnýjun margra tækja.“ Mikið af seldum tækjum er á leið til landsins sem bíða afhendingar til viðskiptavina. „Horfur eru því nokkuð góðar. Við erum bjartsýnir eftir að ný ríkisstjórn tók við og þar er m.a. kominn nýr samgönguráðherra sem hefur nýjar áherslur í vegagerð.“ Vélafl er til húsa í nýlegu og rúmgóðu húsnæði að Rauðhellu 11 í Hafnarfirði sem inniheldur m.a. 1.380 m2 verkstæði og lager. „Við erum með alla viðgerðarþjónustu í sama húsi en fyrirtækið hefur á að skipa sérhæfðum viðgerðarmönnum með áralanga reynslu í þjónustu á vinnuvélum og lyfturum. Enda er Vélafl þekkt fyrir að leggja höfuðáherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi góða og skjóta þjónustu.“ Nánari upplýsingar má finna á www.velafl.is.
Mest lesið Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Boða skattheimtu á fjármálafyrirtæki án útfærslu Viðskipti Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Viðskipti innlent Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Neytendur Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Fleiri fréttir Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl