Askja þjónustar Meiller á Íslandi 31. janúar 2017 15:30 Askja afhenti nýverið verktakafyrirtækinu Ístak þrjá nýja malarvagna frá Meiller.
Nýverið hóf Bílaumboðið Askja ehf. að selja og þjónusta búnað frá þýska framleiðandanum Meiller. Fyrirtækið var stofnað árið 1850 og er stór framleiðandi á vörubílspöllum, malarvögnum, krókheysum og vökvakerfum í vörubíla. Meiller hefur um langt skeið verið leiðandi fyrirtæki á sínu sviði og hafa meðal annars lesendur helstu fagtímarita Þýskalands kosið Meiller vörubílspalla þá bestu tólf ár í röð. Askja býður nú Meiller búnað með atvinnutækjum frá Mercedes-Benz og er viðurkenndur þjónustuaðili fyrir Meiller búnað. Verkstæðið er búið sérverkfærum og tækjabúnaði frá Meiller og hafa starfsmenn á atvinnubílaverkstæði fengið kennslu og þjálfun í þjónustu á Meiller búnaði að sögn Óskars Páls Þorgilssonar, forstöðumanns þjónustusviðs Öskju. „Meiller er þýskt gæðamerki sem við munum þjónusta með stolti. Eigendur Meiller búnaðar á Íslandi geta því héðan í frá leitað til bílaumboðsins Öskju með fyrirspurnir varðandi viðhald, viðgerðir og endurnýjun. Auk þess erum við með helstu varahluti á lager.“Bifreiðastöð ÞÞÞ fékk nýverið afhentan Mercedes-Benz 4 öxla vörubíl með Meiller krókheysi.Askja hefur verið umboðsaðili Mercedes-Benz frá árinu 2005. Starfsmenn Öskju eru yfir 100 talsins og á verkstæðum Öskju starfa í dag á fimmta tug bifvéla- og vélvirkja. Atvinnubílaverkstæði Öskju er á Krókhálsi 11 og er opið alla virka daga frá kl. 7.30 til 18. Til að bóka tíma er hægt að senda tölvupóst á netfangið atvinnubilaverkstaedi@askja.is eða hringja í síma 590 2170. Söludeild Mercedes-Benz atvinnubíla er staðsett á Fosshálsi 1 og er opið alla virka daga frá kl. 9-17. Sölumenn veita nánari upplýsingar í síma 590 2120.
Mest lesið Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira