Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til að skoða upplýsingar um farsíma sem ferðast með sama hætti á farsímasendum og sími Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á aðfaranótt laugardags.
Þetta þýðir að lögreglan má nú kanna hvaða farsímar koma inn á sömu senda og sími Birnu. Síminn kemur fyrst inn á sendi við Mál og menningu á Laugavegi um klukkan 05:25, síðan kemur hann inn á mastur við Lindargötu og er þá á gönguhraða, því næst tengist hann mastri á horni Laugavegs og Barónsstígs og er svo kominn á ökuhraða næst þegar hann tengist mastri í Laugarnesi.
Rúmum tuttugu mínútum síðar, eða um klukkan 5:50 er slökkt á símanum handvirkt þegar hann tengist símamastri á gömlu slökkvistöðinni við Flatahraun í Hafnarfirði.
Hefur töluverða þýðingu fyrir rannsókn málsins
Lögreglan hefur óskað eftir upplýsingum um símana frá símafyrirtækjunum og mun tölvurannsóknardeild taka við þeim. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu segir að úrskurður héraðsdóms hafi töluverða þýðingu fyrir málið.
„Þetta hefur töluverða þýðingu vegna þess að ef að það verður árangur af þessu þá gætum við, og gerum ráð fyrir því að einhver hafi verið í bílnum sem við gerum ráð fyrir því að Birna hafi farið í til Hafnarfjarðar, þá gætum við fengið upplýsingar um símanúmer þess einstaklings,“ segir Grímur í samtali við Vísi.
Aðspurður hvað það taki langan tíma að fá gögnin og svo greina þau segir Grímur að það geti tekið einhvern tíma.
„Við erum samt sem áður að vinna þetta mjög hratt. Við erum búin að biðja um að fá gögnin mjög hratt og við munum vinna þetta mjög hratt.“
Vonast til að hægt verði að vinna úr gögnunum í dag
Grímur segist vonast til að fá upplýsingar í dag og að lögreglan nái jafnframt að vinna úr þeim í dag.
„Það er auðvitað ekki hægt að fullyrða það að það verði af þessu árangur og annað sem rétt er að hafa í huga er að það ferðast ekki allir eins á sendum því það fer eftir því hjá hvaða símafyrirtæki maður er á hvaða sendi maður lendir, eða það getur farið eftir því.“
Aðspurður um hvernig staðan er á öðrum þáttum rannsóknarinnar segir Grímur að ökumaður rauðs Kia Rio-bíls sem lögreglan lýsti eftir í gærmorgun sé enn ófundinn.
Rannsaka hvarf Birnu með þeim aðferðum sem notaðar eru í sakamálum
Þá hefur ekki enn verið staðfest að skór sem fundust við Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi séu af Birnu. Að auki vinnur lögreglan að því að rannsaka mikið af myndefni við höfnina í Hafnarfirði en umfangsmikil leit stendur nú yfir í og við höfnina.
Að sögn Gríms er hvarf Birnu enn ekki rannsakað sem sakamál.
„Ég hef sagt það áður að mér finnst þessi stimpill ekki tímabær, varðandi hvort þetta sé saknæmt eða ekki, en hins vegar vil ég taka það mjög skýrt fram að við rannsökum þetta mál með öllum þeim aðferðum sem við notum annars í sakamálum. Það er allt undir og við beitum öllum okkar tækjum til þess að verða okkur úti um upplýsingar sem geta leitt til lausnar málsins.“
Fréttin hefur verið uppfærð.

