Margt hefur dunið á á líðandi ári og hefur árið 2016 reynst sumum mjög erfitt. Sérstaklega hafa nokkur fyrirtæki átt vægast sagt hræðilegt ár má þar nefna Yahoo, Samsung og Deutsche Bank. CNN tók saman nokkur af þeim fyrirtækjum.
Yahoo
Árið hófst með látum hjá bandaríska tæknifyrirtækinu sem sagði upp 15 prósent starfsmanna í ársbyrjun. Fyrirtækið viðurkenndi svo tvisvar á árinu að það hefði lent í gagnaleka þar sem upplýsingar um milljarð reikninga endaði í höndum hakkara. Hlutabréfin hafa sveiflast mikið á árinu.
Samsung
Batterísgalli Samsung fór varla framhjá neinum á þessu ári. Síminn Galaxy Note 7 sem átti að keppa við iPhone 7 úr smiðju Apple náði ekki markmiði sínu þar sem símar fóru að springa sökum batterígalla. Samsung þurfti að hætta framleiðslu á tækinu og dróst hagnaður fyrirtækisins saman um milljarða í kjölfarið.
Wells Fargo
Vandræði bankans Walls Fargo voru ekki eins áberandi í íslenskum fjölmiðlum og vandræði Samsung og Yahoo engu að síður var árið bankanum mjög erfitt. Í september voru 5.300 starfsmenn reknir vegna þess að þeir stofnuðu yfir 2 milljónir reikninga í leyfisleysi. Framkvæmdastjóri bankans John Stumpf þurfti að lokum að segja af sér. Ljóst er að orðstír bankans er nú mjög lélegt.
Deutsche Bank
Margir af stærstu bönkum heims eiga enn í erfiðleikum sökum fjármálakreppunnar árið 2008, ein þeirra er Deutsche Bank, ein stærsti lánadrottinn heims. Hagnaður bankans var lélegur á árinu og tilkynnt var um fjölda uppsagna. Stærsti skellur bankans var hins vegar 14 milljarða sekt sem bandarísk yfirvöld lögðu á hann vegna lélegra lána í aðdraganda fjármálakreppunnar. Hlutabréfaverð Deutsche hefur hrunið á árinu. Samningar um 7,2 milljarða dollara sekt hefur þó eitthvað sefað fjárfesta.
Twitter
CNN greinir frá því að í byrjun árs hrundi hlutabréfaverð í Twitter eftir að fyrirtækið viðurkenndi að fjöldi notenda væri að dragast saman. Á sama tíma fjölgaði notendum stöðugt á öðrum samfélagsmiðlum. Twitter var svo sett á sölu en enginn hafði áhuga á að kaupa fyrirtækið. Tilkynnt var í kjölfarið um niðurskurð hundraða starfa og að Vine, dótturfélag Twitter, yrði lagt niður. .
Yahoo, Samsung og Deutsche: Fyrirtækin sem áttu hræðilegt ár

Tengdar fréttir

Hlutabréf í Yahoo í frjálsu falli
Í gær tilkynntu forsvarsmenn Yahoo um að fyrirtækið hefði orðið fyrir stærstu netárás í sögunni.

Samsung hættir sölu Galaxy Note 7
Hlutabréf tæknifyrirtækisins lækka verulega í verði.