Sálumessa sungin í minningu Jóns Stefánssonar organista Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. nóvember 2016 11:00 "Jón fékk mig oft til að syngja og vinátta okkar entist þar til hann fór,“ segir Garðar Cortes söngvari og stjórnandi Óperukórsins. Vísir/Pjetur
Óperukórinn í Reykjavík syngur Sálumessu Verdis – Verdi Requiem í Langholtskirkju á morgun, föstudaginn 11. nóvember klukkan 20, ásamt einsöngvurunum Þóru Einarsdóttur, Sesselju Kristjánsdóttur, Gissuri Páli Gissurarsyni og Viðari Gunnarssyni. Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika og stjórnandi er Garðar Cortes. Viðburðurinn er í minningu Jóns Stefánssonar organista en á morgun er ár liðið frá síðasta heila deginum í lífi hans, því 12. nóvember í fyrra lenti hann í bílslysi og náði aldrei meðvitund aftur. „Við Jón vorum samferðamenn og þegar Jón var með allar sínar Bach-kantötur og Händel-stykki, fékk hann mig til að syngja fyrir sig. Þannig hófst okkar samstarf og vináttan entist þangað til hann fór. Við sem stöndum að þessum flutningi nú, um 130 manns, áttum sálumessuna í handraðanum, við fluttum hana árið 2013 í tilefni af 200 ára afmæli Verdis. Vorum beðin um að fara með hana til Rússlands en það slóst af og okkur fannst við hæfi að minnast Jóns með því að flytja hana núna. Þá tökum við líka þátt í því að afla fjár í minningarsjóðinn sem stofnaður hefur verið um hann og er í vörslu Listafélags Langholtskirkju, ágóði af tónleikunum mun renna í þann sjóð.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. nóvember 2016.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira