Vespa 400 boðin upp á ebay á 39.950 dollara Finnur Thorlacius skrifar 1. nóvember 2016 14:40
Vespa er þekktara fyrir framleiðslu léttmótorhjóla en bíla en fyrirtækið framleiddi hinsvegar þennan Vespa 400 bíl á árunum 1957 til 1961. Framleiðsla hans náði mestum hæðum árið 1958 er framleiddir voru 12.130 bílar en bæði sala og framleiðsla fór hnignandi eftir það og átti það helst skýringar í því að bíllinn var afllaus, þótti ansi lítill, með afar skrítna skiptingu og einkar illa hljóðeinangraður. Það hefur þó ekki komið veg fyrir það að nú eru þessir bílar verðmætir söfnunarbílar, enda ekki ýkja mörg eintök til af honum svona heilleg eins og þessi sem hér sést. Nú er verið að bjóða þennan bíl á ebay á 39.975 dollara, eða 4,7 milljónir króna, en enginn hefur þó ennþá stokkið á það verð og mun lægri tilboð komin í hann. Þessu tiltekna eintaki, sem er af árgerð 1960, hefur aðeins verið ekið 8.000 kílómetra og er hann því svo til ónotaður og eiginlega ekkert sést á honum. Allir íhlutir hans eru upprunanlegir og virka sem skildi. Bíllinn er að sjálfsögðu í ökuhæfu ástandi. Vespa 400 er með 14 hestafla vél og hámarkshraða hans sem er á 83,4 km/klst og því má ná á um 25 sekúndum. Uppgefin eyðsla hans í breskum prófunum var 5,11 lítrar. Sjá má myndskeið af annarri gangfærri Vespu 400 á bílasýningu hér að ofan.
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent