Sterkur kvenlegur undirtónn Magnús Guðmundsson skrifar 29. október 2016 11:30 Ásdís Sif Gunnarsdóttir við verk sitt í Listasafninu á Akureyri.
Ásdís Sif Gunnarsdóttir opnar í dag sýninguna Sýn í þokunni í Listasafninu á Akureyri samhliða opnun sýningar bandarísku myndlistarkonunnar Joan Jonas, Volcano Saga, 1985. Ásdís Sif hefur vakið athygli fyrir vídeóinnsetningar, ljósmyndaverk og gjörninga. Auk þess að sýna á Íslandi hefur hún sýnt víða erlendis, tekið þátt í fjölda samsýninga og unnið vídeóverk á internetinu. Það er því engin tilviljun að hún setji upp sýningu á nýjum verkum í Listasafninu á Akureyri á sama tíma og frumkvöðullinn Joan Jonas. Líkt og í verkum Jonas er sterkur kvenlegur undirtónn í verkum Ásdísar Sifjar sem oft er settur fram á ljóðrænan hátt og af tilfinninganæmi. Frásagnir, lífsreynsla og ferðalög konu eru í forgrunni. Ásdís Sif útskrifaðist með BFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA-gráðu frá University of California í Los Angeles 2004. Hún heldur Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi, þriðjudaginn 25. október kl. 17-17.40, undir yfirskriftinni Innsetningar og útsetningar í rauntíma, úti og inni og í gegnum net. Ókeypis aðgangur.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 29. október.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira