Fótbolti

Rúnar Alex: Draumur fyrir mig að spila í svona liði

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Íslenska U21 árs landsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í lokaumferð undankeppni EM 2017 á Laugardalsvelli í dag klukkan 16.45. Með sigri komast ungu strákarnir okkar beint í lokakeppni EM í Póllandi á næsta ári og leika eftir afrek gullkynslóðarinnar frá því 2011.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD en útsending hefst klukkan 16.35.

„Ég er rólegur núna. Ég er ekkert stressaður, bara spenntur,“ sagði Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður liðsins, við Vísi á lokaæfingunni á Laugardalsvellinum í gær.

Sjá einnig:Leikur upp á framtíðina

Íslenska liðið er á toppi riðilsins og ræður eigin örlögum. Sigur þýðir að liðið er öruggt með farseðil á lokamótið. Rúnari Alex finnst Ísland vera með betra lið en Úkraína.

„Mér finnst það. Það segir sitt að við erum efstir í þessum riðli. Ég ætla ekki að vera með of stórar yfirlýsingar en við förum klárlega í þennan leik sem sigurstranglegra liðið þar sem við erum að spila úrslitaleik um að fara á EM en þeir hafa að engu að keppa,“ segir markvörðurinn, en hvert er leyndarmálið á bakvið árangur þessa liðs?

„Ég held að það séu tengslin milli leikmanna. Það eru allir góðir vinir, við þekkjum vel inn á hvorn annan og þekkjum okkar takmörk. Svo er stór hlutur í þessu öllu saman að við erum allir að spila í okkar félagsliðum og komum því til móts við landsliðið með sjálfstraust og í leikformi sem skiptir rosalega miklu máli,“ sagði Rúnar Alex.

Rúnar Alex í leiknum gegn Skotlandi í síðustu viku.vísir/ernir
Stór gluggi

Rúnar Alex missti af fjórum leikjum vegna meiðsla í undankeppninni en er búinn að spila fimm og fá aðeins á sig tvö mörk. Varnarleikur íslenska liðsins frá fremsta manni hefur verið frábær nánast alla undankeppnina.

„Við erum aðeins búnir að fá á okkur fimm mörk í þremur leikjum og halda hreinu sex sinnum. Það er draumur fyrir mig sem markvörð að spila í svona liði,“ sagði Rúnar Alex, sem spilar með Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni.

Sjá einnig:Aron Elís: Þeir ætla ekki að leyfa okkur að halda eitthvað partý hérna

„Það er líka draumur fyrir liðið að geta þetta og er rosalegur styrkur. Ef við skorum eitt mark og við höldum hreinu gegn Úkraínu þá erum við komnir á EM.“

U21 árs keppnin er einn stærsti sýningargluggi heims fyrir unga leikmenn og um það eru strákarnir allir meðvitaðir.

„Það er stórt fyrir leikmennina sem eru að spila á Íslandi að fá þetta tækifæri. Þetta verður bara geggja ef af verður. Þessi gluggi er risastór - alveg risastórt dæmi“ sagði Rúnar Alex Rúnarsson.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Leikur upp á framtíðina

U21 árs landsliðið í fótbolta getur komist í lokakeppni EM 2017 með sigri á Úkraínu í kvöld. Sigur gæti haft jákvæð margföldunaráhrif á íslenskan fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×