Meistaradeildin í forgangi hjá Ranieri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. október 2016 09:45 Riyad Mahrez. vísir/getty
Þrátt fyrir að titilvörnin hafi farið hægt af stað hjá Leicester í ensku úrvalsdeildinni hefur liðið farið af stað með miklum krafti í Meistaradeild Evrópu. Liðið hefur unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu en til samanburðar má nefna að Leicester er með átta stig eftir jafn marga leiki í ensku úrvalsdeildinni. „Í ensku úrvalsdeildinni þurfum við að passa að vera á öruggum stað í lok tímabilsins,“ sagði Claudio Ranieri, stjóri Leicester. „Meistaradeildin er núna. Eins og er þá er Meistaradeildin í forgangi hjá okkur.“ Leicester vann 3-0 sigur á Club Brugge í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni og fylgdi því svo eftir með 1-0 sigri á Porto í fyrsta heimaleik sínum í keppninni. Liðið tekur á móti FC Kaupmannahöfn á King Power-leikvanginum í kvöld og er líklegt að Riyad Mahrez og Islam Slimani, sem skoraði sigurmarkið gegn Porto, verði í byrjunarliðinu í kvöld. „Leikurinn í kvöld verður afar mikilævgur og mun segja okkur hvað við getum getum gert í Meistaradeildinni,“ sagði Ranieri. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4. Guðmundur Benediktsson og sérfræðingar hefja upphitun á Stöð 2 Sport klukkan 18.15 en þeir munu svo fylgjast með öllum leikjum kvöldsins á meðan þeim stendur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira