Íslenski boltinn

Draumur að hafa Doumbia

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Draumurinn Doumbia.
Draumurinn Doumbia. vísir/eyþór
Tveir bestu leikmenn sumarsins í Pepsi-deild karla koma báðir úr FH og þeir sáu öðrum fremur um að brjóta sóknir andstæðinganna á bak aftur. Blaðamenn Fréttablaðsins og Vísis gáfu leikmönnum einkunn í öllum leikjum Pepsi-deildarinnar og lágmark var að fá einkunn fyrir fjórtán leiki eða fleiri.

Það var ekki góður sóknarleikur sem skilaði FH-ingum titlinum í ár því Hafnfirðingar treystu á varnarleikinn. Þar var Kassim Doumbia í stóru hlutverki og naut líka góðs af því að fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson braut niður ófáar sóknir mótherjanna á miðjunni.

Þrjú lið í deildinni skoruðu fleiri mörk en Íslandsmeistararnir en ekkert lið fékk á sig færri mörk. Fjórir 1-0 sigrar vógu á endanum þungt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Þrjú eftirminnileg tímabil

Kassim Doumbia var nokkrum sekúndum frá því að vinna Íslandsmeistaratitilinn á fyrsta árinu sínu með FH en hefur síðan orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð. Doumbia varð í 30. sæti yfir bestu leikmenn Pepsi-deildarinnar 2015 eftir að hafa verið þriðji besti leikmaður deildarinnar á sínu fyrsta ári. Nú lék hins vegar enginn betur.

Kassim Doumbia fékk 6,45 í meðal­einkunn í sumar en hann hækkaði sig töluvert í seinni umferðinni þar sem hann var með meðaleinkunn upp á 6,63. Doumbia fékk reyndar bara eina áttu í sumar en var aftur á móti með átta sjöur og aðeins eina fimmu. Stöðugleiki og jöfn frammistaða skilaði honum efsta sætinu.

Davíð Þór Viðarsson átti einnig betri seinni umferð eins og Doumbia en Blikinn Damir Muminovic, sem varð í þriðja sæti, átti hins vegar betri fyrri umferð en gaf aðeins eftir í þeirri seinni.

Indriði Sigurðsson, miðvörður og fyrirliði KR, er besti „öldungur“ deildarinnar en hann var með bestu meðaleinkunnina af þeim leikmönnum sem eru orðnir 34 ára eða eldri. Næstur honum var Ármann Smári Björnsson, miðvörður Skagamanna.

Besti ungi leikmaðurinn er aftur á móti Blikinn Oliver Sigurjónsson en þar eru aðeins teknir inn leikmenn sem eru 21 árs eða yngri.

Hér til hliðar má sjá hvaða leikmenn enduðu í 50 efstu sætunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×