Fjallað er um Parísardvöl Bieber í breska slúðurmiðlinum Daily Mail og því slegið upp í fyrirsögn að Bieber hafi litið vel út í tættum jakka með „houndstooth“-mynstri og rifnum gallabuxum. Jakkinn sem fór tónlistarmanninum svona vel er frá JÖR eins og áður segir en hönnuðurinn er Guðmundur Jörundsson.
„Þau höfðu samband við okkur svona um það bil viku áður en hann kom hingað til landsins og báðu um að við myndum senda þeim einhvern pakka af fötum,“ segir Guðmundur aðspurður um hvernig það komi til að Bieber sjáist á götum Parísar í hönnun hans, en eins og mörgum er eflaust í fersku minni hélt Bieber tvenna tónleika hér á landi fyrr í þessum mánuði.

Bieber virðist hafa fílað jakkann sem og annað sem hann fékk sent frá JÖR því hann sendi ekkert af því til baka. Jakkinn sem hann klæddist í dag er svokallað „show peace“ segir Guðmundur, það er ekki er til annar jakki eins og þessi en hann er úr vetrarlínu JÖR frá árinu 2014.
Aðspurður hvort að Bieber sé frægasta manneskjan sem sést hafi í hönnun segist Guðmundur ætla að svo sé en gerir þetta mikið fyrir tískumerkið?
„Nei, ekki svona eitt og sér. Það væri ekki nema hann færi sjálfur að tala um merkið eða ganga mikið í því sem það myndi gera eitthvað fyrir okkur,“ segir Guðmundur og bendir á tískumerki sem sérhæfir sig í „streetwear“ sem var mjög lítið og óþekkt þar til Bieber tók upp á því að ganga mikið í því.