Tveir af hverjum þremur vistvænu bílum á Íslandi seldir hjá HEKLU Finnur Thorlacius skrifar 22. september 2016 13:41
Tveir af hverjum þremur vistvænu bílum sem seldir eru á Íslandi eru frá HEKLU samkvæmt nýjustu tölum. Það sem af er ári hafa 766 vistvænir bílir selst á Íslandi og af þeim hefur HEKLA selt 502 bíla, eða 65,54% allra bíla. Næsta fyrirtæki er með 14,75% og það þriðja söluhæsta með 8,5%. Langsöluhæsti bíllinn í flokki vistvænna bíla er Volkswagen en 295 slíkir hafa verið seldir það sem af er árinu 2016. „Það er óhætt að fullyrða að Volkswagen sé með mikla yfirburði í þessum flokki en fyrirtækið býður upp á fjölmargar tegundir eins og e-Golf og Golf Metan og ekki má gleyma VW Passat og VW Up! sem einnig er hægt að fá í vistvænni útgáfu,“ segir Árni Þorsteinsson, sölustjóri Volkswagen hjá HEKLU. HEKLA býður upp á mikið úrval vistvænna bíla en alls er hægt að fá yfir 40 mismunandi bíltegundir í vistvænum flokki frá Volkswagen, Audi, Mitsubishi og Skoda en þessir bílar flokkast sem visthæfir og er því hægt að leggja gjaldfrjálst í gjaldskyld bílastæði hjá Reykjavíkurborg. Nýjasti bíllinn frá HEKLU sem smellpassar í vistvænu flóruna hjá HEKLU er Audi Q7 e-tron quattro sem frumsýndur var um síðustu helgi og hefur þegar slegið sölumet í sínum flokki en um 30 bílar voru seldir áður en þeir komu til landsins.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent