Ég hef heyrt heilu salina skella upp úr Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. september 2016 10:15 "Við höfum ákveðið að vera ekki bara með tónskáld af norrænu þjóðerni heldur líka fólk sem hefur tengsl við norðrið, opnum þannig landamærin,“ segir Guðný Þóra. Vísir/Stefán „
Þetta er okkar tækifæri til að leyfa fólki á Íslandi að fylgjast með hvað er að gerast í samtímamúsík á Norðurlöndunum og líka kynna íslenska tónlist fyrir þeim alþjóðlega hópi sem kemur að utan,“ segir Guðný Þóra Guðmundsdóttir. Hún er listrænn stjórnandi Norrænna músíkdaga sem hefjast á morgun í Hörpu og standa fram á laugardag. Norrænir músíkdagar voru stofnaðir 1888 og eru ein elsta tónlistarhátíð heims. Hátíðin er haldin á Íslandi á fimm ára fresti, var hér síðast 2011. Guðný Þóra kemur að skipulagningu hennar nú í fyrsta sinn, hún býr að öllu jöfnu í Berlín en kveðst vera með gott samstarfsfólk á Íslandi og fljúga á milli eftir því sem þörfin krefur. Fjöldi verka verður frumfluttur á hátíðinni og flytjendur eru hinar ýmsu sveitir og einleikarar. Guðný Þóra segir tónskáld í auknum mæli farin að flytja verkin sín sjálf. Ein af skærari stjörnum nútímatónlistar í dag, Daninn Simon Steen Andersen, er eitt þeirra, hann flytur verk sem hann stjórnar með tveimur tölvuleikjafjarstýringum. „Það er eitthvað sem margir gætu haft gaman af,“ bendir Guðný Þóra á og segir aðalatriði að nýir áheyrendur komi að samtímatónlist með opnum huga, þá verði upplifunin skemmtileg. „Það er svo margt skondið sem ber fyrir eyru. Ég hef heyrt heilu salina skella upp úr,“ lýsir hún. Hátíðin verður líka vettvangur tilrauna, rannsókna og umræðna, að sögn Guðnýjar Þóru. Eitt umfjöllunarefna er hvernig á að varðveita nútímatónlist sem er ekki bara nótnaskrift heldur framkölluð með hinum ýmsu leiðum. „S.L.Á.T.U.R. verður til dæmis með tónleika nú þar sem notaður er uppblásinn hoppkastali til að framkalla hljóð, hvernig á að skrá slíkt verk niður?“ nefnir Guðný Þóra sem dæmi. Hún segir konur einungis 14 til 20% félaga í norrænum tónskáldafélögum en á hátíðinni í ár verði í fyrsta skipti jafnt hlutfall karl- og kventónskálda. „Það hefur tekið 128 ár að ná því,“ bendir hún á. Sjálf var Guðný Þóra á síðustu Norrænu músíkdögum í Kaupmannahöfn í fyrra sem voru fjölmennir. Hún á von á að fólk sæki hátíðina í Hörpu sér til ánægju, enda er ókeypis inn á alla viðburði hennar að undanskildum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Dagskráin er á nordicmusicdays.org. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. september 2016.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira