Viðskipti erlent

Spá áframhaldandi offramboði

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/EPA
Hráolía hefur lækkað í verði í dag eftir að Alþjóðlega orkustofnunin, IEA, birti spá um áframhaldandi offramboð og að það verði lengur til staðar en áður hefur verið talið. Vöxtur í eftirspurn er minni en fyrri spár sögðu til um og líklegt þykir að ástandið muni vara að minnsta leyti út fyrri hluta næsta árs.

Fyrr á árinu hafði stofnunin spáð því að verulega myndi draga úr ónýttum birgðum af olíu á árinu og að ástandið yrði komið í lag við lok þessa árs.

Business Insider gengur svo langt að spá því að möguleiki sé á öðru verðhruni hráolíu. OPEC ríkin ákváðu í síðastas mánuði að auka framleiðslu og juku þannig enn bilið á milli framboðs og eftirspurnar.

Kúvæt og Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa aldrei framleitt jafn mikla olíu og framleiðsla Sádi-Arabíu er nálægt methæðum. Þá er Íran sífellt að auka framleiðslu sína eftir að viðskiptaþvingunum gegn þeim var aflétt.

Sádar eru nú aftur orðnir stærsti olíuframleiðandi heimsins og hafa tekið titilinn af Bandaríkjunum, þar sem framleiðsla hefur dregist saman vegna sífellt lægra verðs. Bandaríkin tóku forystuna árið 2014 eftir að bergbrot (e. fracking) varð alsráðandi þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×