Íslenski boltinn

Gunnar Már búinn að framlengja

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Már handsalar samninginn við Árna Hermannsson, formann knattspyrnudeildar Fjölnis.
Gunnar Már handsalar samninginn við Árna Hermannsson, formann knattspyrnudeildar Fjölnis. mynd/fjölnir
Gunnar Már Guðmundsson, oftast kallaður herra Fjölnir, er búinn að skrifa undir nýjan samning við Fjölnismenn.

Nýi samningurinn er til tveggja ára og mun Gunnar halda áfram að þjálfa meistaraflokk kvenna hjá félaginu.

Gunnar Már er búinn að skora þrjú mörk í sautján leikjum fyrir Fjölni í sumar.

Hann er uppalinn hjá Fjölni en hefur einnig reynt fyrir sér hjá ÍBV, Þór og FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×