Viðskipti erlent

Eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims kaupir Medivation

Sæunn Gísladóttir skrifar
Höfuðstöðvar Pfizer í Bandaríkjunum.
Höfuðstöðvar Pfizer í Bandaríkjunum. Vísir/EPA
Forsvarsmenn lyfjarisans Pfizer tilkynntu í dag að fyrirtækið muni kaupa krabbameinslyfjafyrirtækið Medivation fyrir 14 milljarða dollara, jafnvirði 1.600 milljarða íslenskra króna.

Hluthafar í Medivation fá 81,5 dollara á hvern hlut í reiðufé. Ian Read, framkvæmdastjóri Pfizer, segir í tilkynningu að yfirtakan muni strax ýta undir tekjuvöxt og auka tekjumöguleika Pfizer.

Fjárfestar virðast taka vel í fréttirnar en í viðskiptum fyrir markaðsopnun hefur gengi hlutabréfa í Medivation hækkað um 19,95 prósent í kjölfar tilkynningarinnar.

Medivation hefur lengi átt hug stærri fyrirtækja þar sem fyrirtækið framleiðir lyf fyrir sjúklinga sem eru með krabbamein í blöðruhálskirtli. Lyf Medivation, Xtandi, veltir nú þegar tveimur milljörðum dollara, eða 233 milljörðum íslenskra króna, árlega.

Bandaríska fyrirtækið Pfizer er eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims. Á síðasta ári reyndu forsvarsmenn þess að kaupa annan lyfjarisa, Allergan, en hætt var við yfirtökuna í apríl á þessu ári vegna breyttum reglum í bandaríkjunum.

Krabbameinslyf velta hvað mestu innan lyfjafyrirtækja, sala á krabbameinslyfjum nemur um 80 milljörðum dollara á ári og hefur vöxtur á sölu numið um tíu prósentum árlega.


Tengdar fréttir

Stærsti samruni lyfjafyrirtækja í sögunni

Yfirtakan er ein af fjölmörgum þar sem bandarísk fyrirtæki kaupa evrópsk fyrirtæki og flytja höfuðstöðvar sínar til að forðast háa fyrirtækjaskatta.

2015 metár í yfirtökum

Árið 2015 hefur verið metár í yfirtökum fyrirtækja. Með yfirtöku Pfizer á Allergan, sem tilkynnt var um á mánudaginn, nema yfirtökurnar 4.200 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 555 þúsund milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×