Vinkonur halda upp á afmælið sitt saman Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 23. ágúst 2016 12:00 Anna Gréta og Stína eru báðar búsettar í Stokkhólmi þar sem þær eru athafnasamar í sænsku djasssenunni og koma reglulega fram víða um Svíþjóð.
Anna Gréta Sigurðardóttir og Stína Ágústsdóttir halda tónleika ásamt gestaspilurum á sameiginlegu afmæli sínu í kvöld. Á dagskrá verða einungis þeirra uppáhaldslög. „Þar sem við Anna Gréta Sigurðardóttir píanisti eigum báðar afmæli í dag þá tókum við okkur saman og ákváðum að halda tónleika,“ segir Stína Ágústsdóttir söngkona spurð út í Dúettinn 23/8 sem sem kemur fram í Hannesarholti í kvöld þar sem gleðin og hamingjan mun ráða ríkjum. Á dagskrá verða einungis þeirra uppáhaldslög og ekkert verið að festa sig við tegund tónlistar eða uppruna. Flest verður þó nokkuð djassskotið og auðvelt áheyrnar þar sem þær spila einna helst djasstónlist þegar þær koma fram saman. „Það er aldrei að vita nema við fáum einhverja gestaspilara í heimsókn,“ segir Stína og hvetur sem flesta til þess að mæta og gleðjast með þeim vinkonum á þessum skemmtilegu tímamótum. Fyrri verkefni þeirra vinkvenna hafa vakið athygli en nýliðin sumur ferðuðust þær um Ísland með hljómsveit sinni og spiluðu tónlist Bjarkar í djassútsetningum og tónlist sænsku djassdívunnar Monicu Zetterlund. Anna Gréta og Stína eru báðar búsettar í Stokkhólmi þar sem þær eru athafnasamar í sænsku djasssenunni og koma reglulega fram víða um Svíþjóð með þekktum sænskum tónlistarmönnum.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira