Íslenski boltinn

Framlengt við lykilmann hjá Fjölni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tadejevic í leik með Fjölni.
Tadejevic í leik með Fjölni. Vísir/Ernir
Króatinn Mario Tadejevic verður áfram í herbúðum Fjölnis næstu tvö árin hið minnsta en hann hefur gert nýjan samning við félagið. Þetta kom fram í tilkynningu frá Fjölni.

Tadejevic er 26 ára vinstri bakvörður sem kom til Fjölnis fyrir tímabilið frá Krk í heimalandinu. Hann hefur einnig spilað í Bosníu og Ungverjalandi á ferlinum.

Hann hefur spilað í öllum fimmtán deildarleikjum Fjölnis í sumar en liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 26 stig, fimm stigum á eftir toppliði FH.

Fjölnir mætir næst Víkingi Ólafsvík á útivelli á sunnudag kl. 18.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×