Innlent

Margrét Gauja gefur kost á sér í 2. sæti

Atli Ísleifsson skrifar
Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga.

Margrét er 39 ára og hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá árinu 2006 og gegnt embætti forseta bæjarstjórnar, formanns umhverfis- og framkvæmdaráðs, formanns fjölskylduráðs og stjórnarforanns Sorpu Bs. Nú á hún sæti í bæjarráði Hafnarfjarðarbæjar og fræðsluráði.

Í tilkynningu frá Margréti Gauju segir að hún telji að kraftar sínir og reynsla geti nýst vel fyrir Samfylkinguna í komandi kosningum, hafandi verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði í áratug og varaþingmaður Samfylkingarinnar síðastliðin þrjú ár.

„Ég hef mikinn áhuga á að láta til mín taka á vettvangi Alþingis og berjast fyrir málefnum barnafjölskyldna, á sviði menntamála, heilbrigðismála og umhverfismála.

Ungt fólk og umhverfi þeirra er mitt sérsvið og tel ég mikilvægt að hlúa vel að allri þeirri þjónustu sem að þeim snýr. Umhverfismál eru mér einnig hjartans mál og hef barist fyrir fyrir aukinni flokkun sorps, endurvinnslu og vitundarvakningu á því sviði. Jafnframt vil ég láta til mín taka við verndun lands og taka þátt í að gera hálendi Íslands að þjóðgarði,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×