Innlent

Guðmundur gefur kost á sér í 5. sæti

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmundur Edgarsson.
Guðmundur Edgarsson.
Guðmundur Edgarsson málmenntafræðingur og kennari við HR og EHÍ, sækist eftir 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna komandi þingkosninga.

Í tilkynningu frá Guðmundi segir að kjörorð hans í prófkjörinu séu meira frelsi og lægri skattar. „Þannig vill Guðmundur færa fleiri verkefni frá ríki til markaðar en almennt hefur tíðkast og lækka álögur á vinnandi fólk og fjölskyldur í kjölfarið,“ segir í tilkynningunni.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram laugardaginn 3. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×