Íslenski boltinn

Spútnikliðin mætast í Grafarvogi

Hvað gera Garðar og félagar í Grafarvogi?
Hvað gera Garðar og félagar í Grafarvogi? vísir/fótbolti
Fjórtánda umferð Pepsi-deildar karla hefst í dag með þremur leikjum, en þrír leikir fara svo fram á morgun. Á Stöð 2 Sport verða tveir leikir sýndir beint í dag.

ÍBV heimsækir Víking Ólafsvík í Ólafsvík í fyrsta leik dagsins, klukkan 16.00, þar sem Englendingurinn David Howard Morgan verður með flautuna. Bæði lið hafa verið á mikilli niðurleið að undanförnu. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Eyjamenn spila í bikarúrslitum á laugardaginn og spurningin er hvort það sé eitthvað komið inn í hausinn á leikmönnum liðsins. Liðið er í tíunda sæti með 14 stig, einungis fimm stigum frá fallsæti, en Ólafsvík er í því áttunda með 18 stig.

Klukkan 19.15 verður svo flautað til leiks á Flórídana-vellinum og á Extra-vellinum. Fallbaráttulið Fylkis fær Val í heimsókn, en Fylkir þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda í botnbaráttunni.

Liðið er með níu stig í ellefta sæti, fimm stigum minna en ÍBV, sem er í sætinu fyrir ofan. Valur er í sjötta sætinu með 18 stig og vonast eftir því að ná að klífa hærra upp töfluna. Sömu sögu má segja um Val og var sögð um ÍBV - liðið spilar í bikarúrslitum á laugardaginn og vilja leikmenn komast heilir frá leiknum í dag.

Hinn sjónvarpsleikur dagsins er svo í Grafarvogi þar sem spútnikliðin Fjölnir og ÍA mætast. Fjölnir er í þriðja sætinu eftir leikina þrettán með 23 stig og ÍA er í fimmta sætinu með 19 stig, en ÍA tapaði síðasta leik gegn FH eftir að hafa unnið fimm leiki í röð.

Öllum leikjunum verður að sjálfsögðu lýst í Boltavaktinni og miðstöðin verða á sínum stað. Umferðin verður svo gerð upp í Pepsi-mörkunum undir stjörn Harðar Magnússonar klukkan 22.00 annað kvöld á Sportinu.

Leikir dagsins:

16.00 Vikingur Ó. - ÍBV

19.15 Fylkir - Valur

19.15 Fjölnir - ÍA




Fleiri fréttir

Sjá meira


×