Íslenski boltinn

Jón Ragnar á bekknum hjá FH

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Ragnar Jónsson.
Jón Ragnar Jónsson. Vísir/Pjetur
Jón Ragnar Jónsson er í leikmannahópi FH sem mætir KR í stórleik kvöldsins í Pepsi-deild karla. Jón Ragnar er samningsbundinn FH-ingum til loka tímabilsins en hefur ekkert spilað með FH í sumar.

Jón Ragnar gaf það út í vetur að hann væri hættur að spila fótbolta til að geta einbeitt sér að knattspyrnuferli sínum en hann hefur engu að síður æft með FH í sumar.

Pétur Viðarsson spilar ekki meira með FH í sumar þar sem að hann er farinn aftur til Ástralíu í náms og þá er Jonathan Hendrickx tæpur vegna meiðsla en hann er ekki í leikmannahópi FH í dag.

Fylgst verður með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi, hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×