Innlent

Ingibjörg gefur kost á sér í 4. sæti í Reykjavík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ingibjörg Óðinsdóttir.
Ingibjörg Óðinsdóttir.
Ingibjörg Óðinsdóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í komandi prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir komandi þingkosningar.

Í tilkynningu frá Ingibjörgu kemur fram að hún sé með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands með áherslu á mannauðsstjórnun og BS próf í frétta- og blaðamennsku frá Bandaríkjunum. Hún starfar nú sem mannauðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en hefur einnig unnið sem starfsmanna- og stjórnunarráðgjafi og blaðamaður.

Þá hefur Ingibjörg gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, meðal annars setið í miðstjórn flokksins, fulltrúaráði, í stjórn velferðarnefndar og í nefndum og stýrihópum á vegum borgarinnar.

„Mig langar til að leggja mitt af mörkum og vinna að því að auka sátt í samfélaginu. Ég vil stuðla að því að þingmenn hugsi í lausnum með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Við þurfum að snúa bökum saman og horfa til framtíðar. Úrlausnarefnin eru brýn og allra hagur að leiða þau farsællega til lykta. Sem frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins er ég hluti af heild og þeim stefnumálum sem sett eru fram í kosningum, en ég legg sérstaka áherslu á húsnæðismál, heilbrigðisþjónustuna og málefni aldraðra,“ segir Ingibjörg í tilkynningu.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður laugardaginn 3. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×