Íslenski boltinn

Hermann veitti ekki viðtöl eftir útreiðina á Valsvellinum

Ingvi Þór Sæmundsson á Valsvellinum skrifar
Hermann lét ekki sjá sig eftir leik.
Hermann lét ekki sjá sig eftir leik. vísir/anton
Fylkir er úr leik í Borgunarbikarnum eftir 5-0 stórtap fyrir Val á Valsvellinum í dag.

Fylkismenn, sem unnu sinn fyrsta deildarsigur í síðasta leik, áttu slæman dag og virkuðu algjörlega ráðalausir.

Eftir leikinn var Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, hvergi sjáanlegur og veitti blaðamönnum engin viðtöl.

Blaðamenn biðu í 25 mínútur eftir Hermanni sem lét ekki sjá sig. Þeim var svo tjáð að hann og aðrir Fylkismenn hefðu yfirgefið Hlíðarenda.

Fylkir er í tólfta og neðsta sæti Pepsi-deildar karla með aðeins fimm stig eftir níu umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×