Íslenski boltinn

Meistararnir fara á Selfoss

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valur lagði Fylki í síðustu umferð.
Valur lagði Fylki í síðustu umferð. vísir/eyþór
Nú í hádeginu var dregið í undanúrslit í Borgunarbikar karla og kvenna.

Í karlaflokki verður spilað bæði á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Selfoss hefur komið allra liða mest á óvart og tekur á móti bikarmeisturum Vals.

Í kvennaflokki er stórleikurinn á milli Stjörnunnar og Breiðablik. Þarna mætast tvö efstu liðin í Pepsi-deild kvenna.

Leikirnir í karlaflokki fara fram 27. og 28. júlí en í kvennaflokki verður spilað 22. og 23. júlí.

Undanúrslit karla:

Selfoss - Valur

ÍBV - FH

Undanúrslit kvenna:

Þór/KA - ÍBV

Stjarnan - Breiðablik




Fleiri fréttir

Sjá meira


×