Íslenski boltinn

Jafnt í Laugardalnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fram og Selfoss eru eflaust komin með leið á hvort öðru í bili.
Fram og Selfoss eru eflaust komin með leið á hvort öðru í bili. vísir/hanna
Fram og Selfoss skildu jöfn, 1-1, í 9. umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld.

Þetta var annar leikur liðanna á fjórum dögum á Laugardalsvellinum en þau mættust í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins á þriðjudaginn. Þar höfðu Selfyssingar betur með tveimur mörkum gegn engu.

Króatíski framherjinn Ivan Bubalo kom Fram yfir á 23. mínútu með sínu fimmta deildarmarki í sumar.

Staðan var 1-0 í hálfleik og allt fram á 76. mínútu þegar Jose Teodoro Tirado Garcia jafnaði metin í 1-1 og þar við sat.

Fram er í 6. sæti deildarinnar með 13 stig en lærisveinar Ásmundar Arnarssonar hafa aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

Selfyssingar eru í 8. sætinu með 11 stig en þeir eru án sigurs í síðustu þremur deildarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×