Unnu EM leiki Kia og fara til Frakklands Finnur Thorlacius skrifar 8. júní 2016 15:13 Kristinn tekur á móti vinningnum góða.
Lára Guðmundsdóttir og Kristinn Wium duttu heldur betur í lukkupottinn í EM leikjum Kia hjá Bílaumboðinu Öskju. Þau unnu glæsilegar ferðir fyrir tvo á EM í Frakklandi sem hefst 10. Júní en Kia er einn aðalstyrktarðili EM í knattspyrnu. Lára vann glæsilega 4ra daga ferð til Parísar á opnunarhátíð og opnunarleik EM. Allir Kia eigendur gátu tekið þátt í leiknum með því að skrá bílnúmerið á vefsíðu Kia. Innifalið í ferðinni er flug, gisting, skoðunarferðir í Versali, Eifel turninn og Notre-Dame. Vínsmökkun og makkarónugerð, morgunmatur, hádegismatur og glæsilegir kvöldverðir. Og síðast en ekki síst VIP miðar á opnunarhátíð og opnunarleik EM 2016. Í ferðinni verða 60 þátttakendur frá 30 löndum sem allir eru Kia eigendur. Kristinn vann reynsluakstursleikinn en allir sem reynsluóku Kia í apríl og maí hjá Bílaumboðinu Öskju eða söluumboðum um allt land urðu sjálfkrafa þátttakendur í þessum leik. Kristinn fær ferð fyrir tvo á leik Íslands gegn Austurríki sem fram fer í París 22. júní. Innifalið í ferðinni er flug, gisting og miðar á leikinn. Þau Lára og Kristinn voru að vonum hæstánægð með vinningana og sögðust hlakka til spennandi ferðalags til Frakklands þar sem íslenska landsliðið verður í eldlínunni ásamt 23 öðrum bestu landsliðum Evrópu.Lára glöð með sinn vinning.
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent