Íslenski boltinn

Svensson orðinn Víkingur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Martin Svensson er kominn í rautt og svart.
Martin Svensson er kominn í rautt og svart. Mynd/Víkingur
Víkingur hefur gengið frá samningum við Martin Svensson, danskan 26 ára miðjumann sem mun spila með liðinu út leiktíðina.

Sjá einnig: Danskur kantmaður á leið til Víkings

Svensson hefur spilað í Danmörku allan sinn feril og var síðast á mála hjá Vejle. Hann á einnig tvo leiki að baki með U-21 liði Dana.

Milos Milojevic, þjálfari Víkings, sagði við Vísi í gær að hann muni koma til með að fylla í skarð Vladimir Tufegdzic og Davíðs Arnar Atlasonar sem eiga báðir við meiðsli að stríða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×