Glamour

Kourtney Kardashian í JÖR

Ritstjórn skrifar
Kourtney Kardashian á leið sinni úr landi í kjól frá Jör.
Kourtney Kardashian á leið sinni úr landi í kjól frá Jör. Skjákot/Jör Instagram
Það hefur ekki farið framhjá mörgum að systurnar tvær þær Kim og Kourtney úr raunveruleikaþáttunum Keeping Up with the Kardashians voru á landinu ásamt fríðu föruneyti. Með þeim í för var meðal annars eiginmaður Kim Kardashian, rapparinn og fatahönnuðurinn Kanye West.

Förinni frægu er lokið í bili en Kourtney nýtti greinilega tækifærið og bætti íslenskri hönnun í fatasafnið sitt. Hún sást skarta svörtum silkikjól úr smiðju JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON á leið sinni úr landi fyrr í dag. 

Guðmundur Jörundsson fatahönnuður, eigandi og stofnandi JÖR greindi frá þessu á facebook síðu sinni. „Besta vinkona mín hún Kourtney Kardashian taldi þetta vera komið gott hérlendis eftir að hún fékk þennan JÖR silkikjól í hendurnar ásamt ýmsu fleira.“

Hér má lesa frétt Daily Mail um málið. 

Ekki amalegt. Vel gert JÖR - spurning hvort það bættist eitthvað meira af íslenskri í hönnun í fatasafn þeirra systra. Það verður fróðlegt að sjá á næstu dögum. 

Í rokinu við Leifstöð.Skjáskot/Daily Mail

@kourtneykardash looking amazing in her new 1/1 exclusive JÖR silk dress — exiting Iceland this morning. #JÖR #kourtneykardashian #kardashian #iceland

A photo posted by JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON (@jor_by_gudmundurjorundsson) on



×