Saga Ara Matt með ríkustu mönnum á Íslandi á Holtinu rifjuð upp Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. apríl 2016 13:09 Ari segir fundinn hafa verið á Hótel Holti í kringum árið 2000. Vísir/GVA
Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri sat fyrir nokkra tilviljun fjárfestingafund með mörgum af ríkustu mönnum landsins í kringum aldamótin. Þar kynnti Hreiðar Már Sigurðsson vogunarsjóð fyrir fundargestum sem átti að margborga sig fyrir fjárfesta. Arðgreiðslur áttu að vera tvisvar á ári og greiðast inn á bankareikning í útlöndum að eigin vali að því er Ari heldur fram. Ari sagði söguna í Silfri Egils í janúar 2009, nokkrum mánuðum eftir fall bankanna haustið 2008. Lára Hanna Einarsdóttir rifjar upp sögu Ara í klippu sem Facebook-notendur keppast við að deila. Ljóst er að Lára Hanna kastar klippunni fram á ný í tengslum við mál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og eignir í skattaskjólum.Sjá einnig:Saga skattaskjóla jafngömul og skatta Ari, sem sat fundinn í fjarveru fjársterks vinar síns, sá fundinn fyrst og fremst sem möguleika til að gera sér glaðan dag og borða á Holtinu. Hann áttaði sig svo á því að þarna var verið að hvetja auðmenn til fjárfestingaleiða og hagræðingar með því að geyma auð sinn annars staðar. „Þetta segir manni að þessir peningar sem hafa verið reittir út úr sjávarútvegnum og almennilegum íslenskum fyrirtækjum hafa systematískt farið í skjól í Lúxemborg.“Innslagið má sjá hér að neðan.Fleiri tugir fjölmiðla um allan heim hafa komist yfir nafnalista fólks sem kýs að geyma auð sinn í skattaskjólum erlendis en ekki í bönkum eigin landa. Fleiri íslenskir ráðamenn hafa stigið fram í aðdraganda umfjöllunar sem vænta má í íslenskum sem erlendum fjölmiðlum í kvöld. Þeirra á meðal eru Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Þá sagði Vilhjálmur Þorsteinsson, gjaldkeri Samfylkingarinnar, sig frá störfum fyrir flokkinn vegna hlutafélags sem hann átti í Lúxemborg og hafði ekki greint frá. „En þrátt fyrir allt sem að ofan er sagt, má augljóst vera að svona flókið eignarhalds- og fjárfestingadæmi hjá gjaldkera Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands er lítt til þess fallið að fókusera umræðuna sem nú stendur yfir um aflandsfélög og skattaskjól á það sem máli skiptir: ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann í landinu.“Sjá einnig:Skattaskjól, lögleg en siðlaus? Fjallað verður um málið í Kastljósi í kvöld og hið sama gera fjölmiðlar víða um heim, á sama tíma eða klukkan 18 að íslenskum tíma. Má þar nefna danska og sænska ríkisútvarpið og Aftenposten í Noregi. Stiklu fyrir þáttinn sem sýndur verður á DR1 í kvöld má sjá að neðan.Erhvervsfolk, politikere og sportsstjerner gemmer penge i skattely - flere hundrede af dem er danskere.DR Dokumentar...Posted by DR1 on Wednesday, March 30, 2016
Panama-skjölin Tengdar fréttir Spyr hvort hann þurfi að skilja við eiginkonuna til að geta tekið þátt í stjórnmálum Forsætisráðherra lætur þung orð falla um formann Samfylkingarinnar. 1. apríl 2016 19:09 Boða til mótmæla á Austurvelli og krefjast kosninga Búið er að boða til mótmæla á Austurvelli næstkomandi mánudag klukkan 17 en klukkan 15 kemur Alþingi saman á ný eftir páskahlé. 30. mars 2016 11:53 Vill rjúfa þing og efna til kosninga „Hið eina rétta að gera við núverandi aðstæður að rjúfa þing og efna til kosninga,“ segir Helgi Hjörvar. 30. mars 2016 15:46 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira
Spyr hvort hann þurfi að skilja við eiginkonuna til að geta tekið þátt í stjórnmálum Forsætisráðherra lætur þung orð falla um formann Samfylkingarinnar. 1. apríl 2016 19:09
Boða til mótmæla á Austurvelli og krefjast kosninga Búið er að boða til mótmæla á Austurvelli næstkomandi mánudag klukkan 17 en klukkan 15 kemur Alþingi saman á ný eftir páskahlé. 30. mars 2016 11:53
Vill rjúfa þing og efna til kosninga „Hið eina rétta að gera við núverandi aðstæður að rjúfa þing og efna til kosninga,“ segir Helgi Hjörvar. 30. mars 2016 15:46