Íslenskur vopnasali í Panama-skjölunum Bjarki Ármannsson skrifar 6. apríl 2016 10:40 Íslenski auðkýfingurinn Loftur Jóhannesson, sem búsettur er í Bandaríkjunum, er nafngreindur í Panama-skjölunum svokölluðu. Vísir/EPA
Íslenski auðkýfingurinn Loftur Jóhannesson, sem búsettur er í Bandaríkjunum, er nafngreindur í Panama-skjölunum svokölluðu. Að því er kemur fram í umfjöllun blaðamannasamtakanna ICIJ tengdist Loftur fjórum aflandsfélögum á Bresku Jómfrúaeyjum og Panama. Loftur er með ríkustu núlifandi Íslendingum. Hann starfaði lengi sem flugmaður erlendis en undir lok kalda stríðisins greindu erlendir fjölmiðlar frá því að hann hefði haft aðkomu að vopnasölu fyrir bandarísku leyniþjónustuna CIA. Loftur neitar því að hafa nokkurn tímann unnið fyrir leyniþjónustuna og talsmaður hans ítrekar það í samtali við ICIJ. Þýska tímaritið Der Spiegel fullyrti þó árið 1992, í frétt sem unnin var upp úr skjölum föllnu austur-þýsku leynisþjónustunnar Stasi, að Loftur hefði verið milliliður milli vopnasala í Austur-Þýskalandi og CIA í stórfelldum vopnaviðskiptum. Árið 1987 greindi breska blaðið The Sunday Times svo frá því að Loftur hefði selt stjórnarher Saddam Hussein í Írak tólf skriðdreka. Hann ku hafa gengið undir heitinu „Íslendingurinn.“ Loftur er fæddur árið 1930 og með lögheimili í Reykjavík.
Panama-skjölin Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Sjá meira