Íslenski boltinn

Vildum ekki vanvirða neinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik með Þrótti.
Úr leik með Þrótti. Vísir/Anton
Eins og áður hefur komið fram gaf Þróttur leik sinn gegn Þór í Lengjbikarkeppni karla sem fara átti fram í gær.

Leikurinn átti að fara fram á Akureyri en Ótthar Edvardsson, framkvæmdastjóri Þróttar, segir að ekki hafi tekist að finna hentugan leiktíma.

Þróttur er nýbúinn að fara í æfingaferð til Spánar og segir að það hafi reynst erfitt fyrir menn að fá enn meira frí frá vinnu fyrir ferð til Akureyrar á þeim leikdögum sem komu til greina.

Sjá einnig: „Þróttarar náðu ekki í lið“

„Menn fengu frí til að fara í æfingaferðina en svo gekk það bara ekki upp að finna heppilegan leikdag með Þór,“ sagði Ótthar í samtali við Vísi í dag.

„Það var ekki að við vildum ekki spila. Þetta er ekki meint sem óvirðing við Þór eða hreyfinguna sem slíka. Ég skil það vel að það kunni að koma þannig út en það var alls ekki ætlun okkar.“

Þróttur hefur ekki unnið leik allt undirbúningstímabilið en Ótthar hefur ekki áhyggjur af því að þetta mál geri horfur Þróttara fyrir sumarið í Pepsi-deildinni enn verra.

„Þetta er auðvitað óheppilegt en eins og Gregg [Ryder, þjálfari] hefur margoft komið inn á þá stefnum við á að vera klárir 1. maí. Það er okkar markmið.“

„Það er ekki gott að hafa ekki unnið leik í allan vetur. Maður hefur líka prófað það áður - líka að vinna alla leiki á undirbúningstímabilinu.“

Þróttur birti eftirfarandi tilkynningu á heimasíðu sinni í dag:

„Ýmsar ástæður fyrir því að ekki var mögulegt fyrir okkur að leika á umræddum leikdögum. Vitað var fyrir nokkru að upphaflegur leikdagur gekk ekki upp vegna utanferðar Þróttar og næsti leikdagur sem við lögðum til gekk ekki upp vegna utanferðar Þórs. Það er alls ekki meining okkar að sýna Þór, KSÍ eða öðrum óvirðingu, fjarri því en aðstæður eru með þeim hætti að útilokað var fyrir okkur að leika á umræddum dögum og höfðum við lagt til aðra leikdaga sem ekki komu til greina af hálfu Þórs.

Okkur þykir miður að svo hafi farið og biðjumst við velvirðingar á því, það er skiljanlegt að þessar aðstæður bjóði upp á hörð viðbrögð mótherja en í engu var meiningin að sýna þeim eða öðrum óvirðingu.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×